Vonbrigði?

Afhverju þarf alltaf að taka það fram sérstaklega í fréttum að karlmenn séu  á einhvern hátt í meirihluta. ARGGGG... Angry 

Mér hundleiðast svona fréttir, samt tel ég mig ekki feminista, engan vegin (eflaust flest annað en það) Verandi enn óháð og ekki alveg flokksbundin get ég víst ekki mikið rifið kjaft, líklegast er einungis um tölfræði að ræða í þessu tilfelli EN afhverju er ekki hægt að orða þetta aðeins öðruvísi????

 


mbl.is 40% kosningabærra Íslendinga í stjórnmálaflokkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brilljant....

Æ grey maðurinn hann á náttúrulega bara lélega vini!!! Þegar ástandið er orðið það slæmt að þú hefur engan til að tala við og brotnar saman á leiksýningu í Hafnarfirði og verður bara að fá að tjá þig, og byrjar að skammast við leikarann upp á sviði. Ætli þetta sé kennt í leiklistarskólanum eða þarf að fara að breyta námskrá þeirra? Grin


mbl.is Leikhúsgestur rökræddi við leikara í miðri sýningu á Draumalandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófærð djö...

Þennan eina dag sem mig virkilega "vantar"  að komast til RVK þá er ófært. Þetta náttúrulega gengur ekki... spurning um að skella Hellisheiði bara inn í stokk.... þá væri ALDREI ófært!
      

mbl.is Hellisheiði lokuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

votta samúð

Ég votta aðstandendum þessara manna alla mína samúð.

Sorglegur atburður sem þarna átti sér stað. 


mbl.is Fórust í sjóslysi í Ísafjarðardjúpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björg Hauks ÍS

Mér brá þegar ég fékk sms frá GAE sem spurði mig út í nafnið á bátnum og hvort þetta væri ekki akkuratt Björg Hauks sem við könnuðumst við. Fyrrum mágur minn átti þennan bát, því er ég með góðan hnút í maganum varðandi þessa frétt. Ég veit ekki hver var á bátnum! Mig vantar að fá að vita það. Þetta slys er alveg hræðilegt, ég á ekki orð.
mbl.is „Sorglegra en orð fá lýst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEIMSKU kanar

AFhverju reka þeir ekki bara allt helvítis draslið sem sættir sig að vinna undir "stjórn" Bush???

Bandaríkin munu bara fara niðrá við með Bush í starfi. Það ætti að endurnýja allt helvítis draslið og byrja upp á nýtt.

 


mbl.is Starfsmannastjóri dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki fréttir...

Mig langaði til að blogga um einhverja frétt. Svona af því að ég lifi "tvöföldu lífi" í bloggheimunum! EN ég sé enga frétt sem ég tel mig knúna til að tjá mig um, held að það sé smá "ekki fréttadagur" í dag. 

Þar af leiðadi mun ég ekki reyna að bulla einhverja vitleysu um ekki neitt, heldur mun ég biða frétta sem ég þarf að tjá mig um. 


Æji...

Þetta er leiðinlegt tjón, bróðir minn býr í þessu húsi og var bíllinn hans fullur af vatni uppfyrir stýri í morgun þegar hann ætlaði sér að nota hann...  

mbl.is Tugmilljóna króna tjón á Sólvallagötunni; ljóst að vatn hefur lekið víðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur og bílar!

Jahérna!  Þetta er nú bara með ólíkindum. Grey stelpan hvað hún hlítur að sjá illa! Grin

Konur í umferðinni  eru ótrúlegar. Hvernig er ekki hægt að taka eftir því að maður sé að bakka upp á tré? Ég hef aldrei bakkað á neitt þannig ég veit ekki hvernig maður á að vita að maður sé beint að bakka á eitthvað en þá reikna ég líka með einhverju sem er kannski aðeins minna áberandi en tré!

Það bakkaði kona á tengdamömmu mína á fimmtudaginn, konan sem bakkaði tók ekkert eftir því að hún hefði bakkað á hana og gerði sér ekki grein fyrir því fyrr en tengdamamma elti hana og pikkaði aðeins í hana ; "Fyrirgefðu en þú bakkaðir á bílin minn!" Konan; "HA? Ég trúi þér ekki!" 

Kannski þessi "bakka-á-veiki" sé eitthvað að ganga líkt og inflúensan ég veit það ekki EN þetta er full gróft að mínu mati. 


mbl.is Bakkað yfir tré á Skólavörðustíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Eydís Rós Eyglóardóttir
Eydís Rós Eyglóardóttir
Með skoðun á flest öllu

Eldri færslur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 521

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband