10.3.2007 | 22:26
Konur og bílar!
Jahérna! Þetta er nú bara með ólíkindum. Grey stelpan hvað hún hlítur að sjá illa!
Konur í umferðinni eru ótrúlegar. Hvernig er ekki hægt að taka eftir því að maður sé að bakka upp á tré? Ég hef aldrei bakkað á neitt þannig ég veit ekki hvernig maður á að vita að maður sé beint að bakka á eitthvað en þá reikna ég líka með einhverju sem er kannski aðeins minna áberandi en tré!
Það bakkaði kona á tengdamömmu mína á fimmtudaginn, konan sem bakkaði tók ekkert eftir því að hún hefði bakkað á hana og gerði sér ekki grein fyrir því fyrr en tengdamamma elti hana og pikkaði aðeins í hana ; "Fyrirgefðu en þú bakkaðir á bílin minn!" Konan; "HA? Ég trúi þér ekki!"
Kannski þessi "bakka-á-veiki" sé eitthvað að ganga líkt og inflúensan ég veit það ekki EN þetta er full gróft að mínu mati.
Bakkað yfir tré á Skólavörðustíg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Konur í umferðinni ótrúlegar? Það er búið að innræta okkur konum að við séum svo lélegar í mörgu að við trúum því fyrir rest. Strákum talin trú um að þeir séu svo klárir að þeir trúa því . Bestu bílstjórar sem ég þekki eru konur ... kannski af því að sit oftar í bíl með konum. Strákurinn minn trúir því í alvöru að hann sé frábær bílstjóri, eða trúði því þegar hann var 17-18 ára. Hann braut þvílíkt umferðarreglur og fannst hann snillingur fyrst hann náðist svona sjaldan. Ég er mjög fegin því að hann lenti bara í einum árekstri. Hann áttaði sig og er orðinn betri. Hefði ekki getað komið fyrir hvern sem er að lenda í þessu, eins og stelpugreyið?
Tek það fram að ég verð jafnfúl þegar sagt er eitthvað svona um karlmenn og að þeir séu svo lélegir í einhverju vegna kyns síns. Það er ekkert rosalega langt síðan það var hlegið að þeim þegar þeir reyndu að elda. Bara dæmi
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 11.3.2007 kl. 00:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.